Dagur að tafli í Montreal. Mynd: Facebooksíða Dags.

FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2247) er einn fjöldamargra Íslendinga sem tefla erlendis í sumar. Þessa dagana situr hann að tafli á alþjóðlegu móti í Montreal í Kanada. Hann teflir þar í 10 manna lokuðum flokki.

Dagur byrjaði illa á mótinu og eftir fjórar umferðir hafði hann aðeins hálfan vinning. Hann gerði jafntelfi í fimmtu umferð. Í gær vann Fjölnispilturinn báðar sínar skákir. í 6. og 7. umferð. Báðar gegn kanadískum FIDE-meisturum.

Keppendur á mótinu í Montreal. Ungir og ferskir og þola að tefla tvær skákir á dag! Mynd: Facebooksíða Dags.

Um er að ræða hálfgert hraðmót. Tefldar eru níu umferðir á fimm dögum. Mótinu lýkur í dag/kvöld með tveimur síðustu umferðunum sem hefjast kl. 14 og 19.

- Auglýsing -