Zurab Azmaiparashvili fer fyrir eina framboðinu til forystu ECU. Ljóst er að Zurab er sjálfkjörinn í áframhaldandi störf og Gunnar okkar Björnsson mun verða deputy president eða varaformaður evrópska skáksambandsins.

ECU hyggur á frekar sigra í evrópsku skáklífi en mótahald og skipulag hefur verið með besta móti undir núverandi stjórn.

Gunnar er eins og áður segir sjálfkjörinn í sitt embætti en hann, Zurab og Theodorus ritari sambandsins fluttu ræður við opnun básar til kynningar framboðinu þó sjálfkjörið sé.

Maia Chiburdanizde og Nana Alexandria voru mættar til að styðja samlanda sinn og eins var mikið af ljósmyndurum og sjónvarpsstöðvum frá Georgíu.

Georgískar veitingar voru svo í boði fyrir gesti en Georgía er mjög þekkt fyrir víngerð og matur hér almennt mjög góður.

- Auglýsing -