Eftir glæsilega byrjun á Ólympíumótinu í skák fékk íslenska liðið algjöra magalendingu gegn feykisterku liði Ísrael. Ísrael skartar fyrrverandi heimsmeistara kandídatanum Boris Gelfand og hafa oft náð á verðlaunapall á Ólympíuskákmótum. Íslenska liðið gerði of mörg mistök í dag sem lið eins og Ísrael refsa fyrir strax. Hannes Hlífar Stefánsson var eini íslenski keppandinn sem náði jafntefli en aðrir töpuðu.
Íslenska liðið í kvennaflokki vann aftur á móti nauman baráttusigur á alþjóðlegu liði fatlaðra skákmanna (IPCA). Nansý Davíðsdóttir vann sinn annan sigur á mótinu og það nægði þar sem aðrar viðureignir enduðu með jafntefli.
Nánari útlistun á viðureign dagsins kemur í pistli umferðarinnar í kvöld.
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 3.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur