Góður dagur hjá íslensku liðunum á Ólympíuskákmótinu í Batumi í Georgíu þar sem liðin misstu aðeins hálfan vinning niður samtals!
Opinn flokkur:
Jóhann Hjartarson vann mjög snotran sigur á öðru borði
Jóhann lék hér 18.a4!? með ansi skemmtilegu plani. Eftir 18…Hfc8 kom 19.Bc4! til að loka allt sprikl á drottningarvæng og eftir 19…Hc7 kom hugmyndin með a4 í ljós, „radical rook“ eins og John Watson kallaði það í bókinni „Secrets of Modern Chess Strategy“ 20.Ha3! og hrókurinn fór yfir á kóngsvæng og olli miklum usla. Snaggaraleg skák sem vert er að renna yfir!
Hannes vann góðan baráttusigur á þriðja borði. Hannes hafði alltaf ívið betra og hann náði að sigla vinningnum heim í hróksendatafli.
Hér kom 42…g3! sem nýtir sér slæma stöðu hvíta kóngsins. Eftir 43.Hf1 Hf4!? virtist Hannes hafa allt „under control“ og vann á frelsingjanum á b-línunni sem hann bjó til í kjölfarið.
Héðinn sýndi flotta endataflstækni og vann með svörtu gegn alþjóðlegum meistara með yfir 2400 skákstig. Héðinn hafði 4 peð gegn 3 á sama væng sem getur oft reynst mjög erfitt að vinna en Héðinn fann leið til að pressa sig í gegn og fá loks unnið hróksendatafl með f-peði og vel staðsettum kóng.
Guðmundur fékk ekki nóg með hvítu og stefndi í jafntefli í um 30. leik. Guðmundur reyndi þó og reyndi að búa eitthvað til en skákin virtist vera að fjara út í jafntefli þegar Guðmundur lék af sér manni. Sem betur fer kom það ekki að sök og Gummi náði að verjast með hrók gegn hrók og biskup.
Góður 3.5-0.5 sigur!
Skákir karlanna eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)
Kvennaflokkur:
Kvennaliðið mætti ungu og óreyndu liði Hong Kong. Mikill stigamunur var á sveitunum og sigur Íslands aldrei í hættu.
Nansý var fyrst til þess að leggja sinn andstæðing með svörtu mönnunum á 3. borði. Upp kom Meran afbrigði semi-slavneskrar varnar og tefldi hvítur af mikilli skynsemi allt fram í miðtaflið þegar hún missti tökin og Nansý vann mann með einfaldri fléttu. Eftirleikurinn var auðveldur.
Jóhanna hafði hvítt á 4. borði og fékk á sig skandinavíska leikinn eins og við bjuggumst við. Hún vann peð eftir byrjunina og þó að ungur andstæðingur hennar hafi gert sitt besta til þess að gera Jóhönnu úrvinnsluna erfiða þá var aldrei spurning um niðurstöðuna.
Hér var staðan orðin 2-0 og Gulla og Lenka sátu eftir báðar með unnar stöður.
Lenka fékk mun betra tafl eftir byrjunina og þrengdi mjög að andstæðingi sínum. Á endanum varð eitthvað undan að láta:
Síðasti leikur hvíts var 24. Rg3 og hér lék Lenka 24..e3! og eftir 25. Rxf5 exd2+ 26. Dxd2 Hxf5 vann hún auðveldlega.
Gulla tefldi Grand-prix árásina í fyrsta skipti á ævinni og fékk draumastöðu eftir byrjunina. Hún sótti hart fram á kóngsvængnum en á sama tíma hafði hún góð tök á drottningarvæng og miðborði þannig að svartur var allan tíman alveg planlaus. Eftir að f- og g-línurnar opnuðust á kóngsvængnum vann Gulla mann og innbyrti öruggan sigur í endataflinu.
Sanngjarn og góður 4-0 sigur Íslands.
Skákir úr kvennaflokki eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)
Gangur mótsins
Það er allt gjörsamlega löðrandi í spennu bæði í opnum flokki og kvennaflokki. Í kvennaflokki eru Kínverjar efstir en mæta Rússum sem geta sett strik í reikninginn. Bandaríkin og Úkraína eru svo einu stigi á eftir og mætast innbyrðis og gæti það verið úrslitaviðureign ef Rússar leggja Kínverja.
Í opnum flokki mætast Kínverjar og Bandaríkjamenn í magnaðri úrslitaviðureign þar sem ALLT er undir! Sá sem vinnur viðureignina verður Ólympíumeistari en ef jafntefli verður niðurstaðan þarf að leita í stigaútreikning og þá gætu Pólverjar einnig slegist aftur í hópinn með sigri á Indverjum.
11. umferð
Pörunin í lokaumferðina er Ísland gegn Svartfjallalandi (Montenegro) í opnum flokki og Úrúguay í kvennaflokki. Bæði lið sem við getum lagt að velli og tryggt okkur betra sæti. Umferðin hefst klukkan 07:00 að íslenskum tíma.
Heyrst hefur:
- Að fjórða borðs maður Póllands hafi verið svo stressaður í skákinni mikilvægu í dag að hann hafi sjáanlega svitnað eins og hann hefði verið að spila skvass.
- Að allskonar FIDE dindlar hópa sig nú að Nigel Short eins og hann sé aðalmaðurinn. Shortarinn fær víst eitthvað hlutverk í stjórn Dvorkovich.
- Fimm komu að biðja Kramnik um eiginhandaráritun við upphaf umferðar. Kramnik gaf þrjár en baðaði svo höndunum út í loftið enda vildi hann koma sér í gírinn rétt fyrir skák.
Áframhaldandi umfjöllun verður hér á Skak.is