Magnús Carlsen gnæfir yfir andstæðinga sína. Mynd: Alina l'Ami/Tata Steel Chess

Magnús Carlsen (2835) virðist vera í toppformi á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík. Í gær vann Anand (2773) eftir langt og strangt endatafl. Heimsmeistarinn er nú efstur með 7 vinninga eftir 10 umferðir.

Anish Giri (2783) er nú kominn í annað sæti eftir góðan sigur á Vladimir Fedoseev (2724). Jordeen Van Foreest (2612) hjálpaði til fyrir Carlsen og Giri því hann lagði Nepo (2763) að velli í snarpri fórnarskák.

Frídagur er í dag en taflmennskan heldur áfram á morgun.

Staðan

 

Nánar á Chess.com

- Auglýsing -