
Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2530), gerði í gær jafntefli við rússneska stórmeistarann Nikita Vitiugov (2720) í skemmtilegri skák. Jóhann tefldi á áþekkan og Anand gerði á móti í glæsilegri sigurskák á móti Mamedayrov á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík og fékk vænlegt tafl. Hann missti af skemmtrilegri stungu í 16. leik sem hefði honum afar góða stöðu. Rússinn leysti öll vandamál sem Jóhann lagði fyrir hann.
Jóhann lék 16. Bd2 og skákinni lauk með jafntefli við eftir 30 leiki. Eftir 16. Rd6+! Bxd6 17. exd6 hefur hvítur mun betra tafl. 17…Dxd6 er svarað með 18. Rf5 og g7-peðið fellur með skák.
Þriðja umferð fer fram í dag. Þá teflir Jóhann við spænska alþjóðlega meistarann Anders Merario Alacron (2405).
Jóhann verður í þráðbeinni og hefst útsending kl. 14.
252 skákmenn tefla í efsta flokki mótsins. Þar af eru 95 stórmeistarar!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14).
















