Frá HM öldungasveita. Það grillir í liðið í 50+: Þröstur, Jón L., Margeir og Helgi. Mynd: Facebook-síða mótsins

Ísland gerði 2-2 jafntefli við lið Ítala á HM öldungasveita sem fram fór í Ródos í dag. öllum skákunum lauk með jafntefli – flestum eftir langa baráttu. Jóhann Hjartarson kom inn í liðið en Þröstur Þórhallsson hvíldi í dag. Þeir mæta hörðu liði Englendinga á morgun sem hafa Jon Speelman á fyrta borði.

Eldra liðið (65+) vann góðan 3-1 sigur á Norðmönnum. Áksll Öen Kárason, Kristján Guðmundsson og Jón Kristinsson unnu sínar skákir. Þeir mæta Austurríkismönnum á morgun.

- Auglýsing -