Björn Þorfinnsson að tafli á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu.

Björn Þorfinnsson (2414) hefur byrjað afar vel á opnu móti í Dublin í Írlandi. Hann hefur fullt hús eftir 3 umferðir.

Í fyrstu tveim umferðunum féllu Írarnir Nick Larter (1820) og Anthony Fox (2031) í valinn. Í þriðju umferð vannst svo góður sigur á hollenska undrabarninu, Yichen Han (2190) sem er aðeins 11 ára.

Björn er meðal níu keppenda með fullt hús. Í dag teflir Björn við króatíska stórmeistarann Ognjen Jovanic (2515). Umferðin hefst kl. 12.

FIDE-meistarinn Páll Agnar Þórarinsson (2246) tekur einnig þátt. Hann hefur 2 vinninga.

- Auglýsing -