Teflt á öllum borðum sem laus voru í skólanum

Það hefur verið mikið um að vera í skákstarfi Landakotsskóla í vetur: haustferð í Fischer setrið á Selfossi, skólaliðin náðu frábærum árangri á grunnskólamótum vetrarins, og þá bauð skólinn heim til Íslandsmóts grunnskólasveita í mars.

Skákstarfi vetrarins lauk með skólamóti á árvissum skákdegi Landakotsskóla þann 10. maí síðast liðinn. Mótið var nú haldið í þriðja sinn, og opið öllum nemendum skólans í 1.-10. bekk. Í ár tóku fleiri keppendur þátt en nokkru sinni áður: 82, eða um þriðjungur allra nemenda við skólann. Þátttakendur hefðu verið enn fleiri ef ekki hefði þurft að takmarka þátttöku vegna plássleysis í matsalnum!

Skákin kallar á einbeitingu

Tefldar voru 7 umferðir og tímamörk voru 10 mínútur. Nemendurnir tefldu 4 umferðir fyrir hádegi, og þegar hlé var gert á móti til að snæða hádegisverð voru enn 5 keppendur með fullt hús. Við upphaf 6.umferðar voru þó einungis 2 keppendur ósigraðir, og mættust þau á fyrsta borði, Ian úr 8.bekk með svart, og Iðunn úr 6.bekk með hvítt. Tók þá við afar spennandi skák sem Iðunn vann að lokum. Iðunn vann einnig síðustu skák dagsins og hampaði titlinum skákmeistari Landakotsskóla 2019 með fullt hús stiga eftir 7 umferðir og langan dag. Til hamingju, Iðunn!

Viðureign Iðunnar og Ians

Iðunn hlaut bikar til eignar, þá voru veittir verðlaunapeningar fyrir annað og þriðja sæti, sem og smærri peningar fyrir efstu keppendur í hverri bekkjardeild. Þá voru einnig veitt sérstök verðlaun fyrir góða taflmennsku og framúrskarandi þátttöku í skákstarfi skólans.

Helstu verðlaun hlutu:

Skákmeistari Landakotsskóla: Iðunn Helgadóttir

2.sæti: Krummi Margeirsson

3.sæti: Ian Valdimarsson

Sérverðlaun: Úlfur Þórólfsson

Verðlaunahafar á skákmóti Landakotsskóla

Ég vil sérstaklega þakka Hrafnkatli Einarssyni, Skáksambandi Íslands, sem og öllum öðrum er tóku höndum saman til að gera okkur kleift að halda þetta skemmtilega mót.  Það var sérstaklega gleðilegt að sjá hve jákvæð samskiptin voru milli yngri og eldri nemenda skólans. Mótið hefur fest sig í sessi í skólastarfinu og við bindum vonir við að það verði haldið á hverju ári um ókomna tíð.

Micah Quinn

Skákkennari og þjálfari skólaliða Landakotsskóla.

- Auglýsing -