Gunni Gunn, Björgvin Víglundsson og Jóhann Larsen urðu efstir. Mynd: ESE

Skákklúbburinn ÆSIR efndi sl. þriðjudag til sérstaks minningarmóts um látna félaga sem hafa kvatt skákborð lífsins á liðnum 15 árum. Hvorki meira né minna en 36 skákmenn sem hafa látið gamminn geysa við taflborðið í Stangarhyl og margir hverjir í Riddaranum líka  eru horfnir á braut til eilífðarlandsins eins og stundum er sagt.

Á undanförnum árum hafa verið haldin sérstök árleg minningarmót um staka skák- og forystumenn. t.d. Birgi Sigurðsson og Þorstein Guðlaugsson hjá Æsi og Grím Ársælsson og Fjölni Stefánsson i Riddararnum, sem nú hafa verið aflögð. Í stað þess er nú eitt mót á vetri í hvorum klúbbi tileinkað minningu hinna mörgu látnu félaga þar sem teflt er i anda og minningu þeirra allra. Margir þessar manna voru virkir skákmenn um áratugaskeið og tefldu síðustu árin í skákklúbbum hinna 60 ára og  eldri sér til afþreyingar og hugarhægðar meðan aldurinn færðist enn frekar yfir.

Æsir að tafli. Mynd: ESE

Þó stór og þung skörð hafi verið höggvin í raðir virkra skákmanna á undanförnum árum á sér þó blessunarlega stað sífelld endurnýjun i hópi eldri skákmanna eðli málsins samkvæmt og því var þátttaka í minningarmótinu góð en iðulega mæta á þriðja tug eldri borgara til tafls í Ásgarði, félagsheimili FEB í Stangarhyl vikulega yfir veturinn.

Hinn þrautseigi aldni meistari Gunnar Kr. Gunnarsson, nær 86 ára, fór með glæsilegan sigur af hólmi með 8.5 vinning af 10 mögulegum. Hinn valinkunni Björgvin Viglundsson varð annar að þessu sinni með 7.5v og Jóhann Larsen kom á óvart og varð þriðji með sjö. Sumir aðrir máttu muna sinn fífil fegri þó þeir blómstri út um allt um þessar mundir.

Nánari úrslit og nöfn hinna burtkölluðu félaga, hverra  minning lifir, má sjá hér:

Lokamót skákvertíðarinnar í Stangarhyl lýkur nk. þriðjudag með hraðskákmóti þar sem telfdar verða 13 umferðir, 7 mín. Mótið stendur frá kl. 13 til 17.  En hjá Riddaranum verður haldið áfram að tefla alla miðvikudaga í sumar sem og hjá KR bæði á mánudagskvöldum og laugardagsmorgnum. Allir velkomnir óháð aldri og félagsaðild.

- Auglýsing -