Skákáhátíðinni í Helsinki lauk í morgun með níundu og síðustu umferðinni. Bæði Hilmir Freyr Heimisson (2258) og Bragi Halldórsson (2116) áttu slakan endasprett. Þeir hlutu báðir 3 vinninga í 9 skákum.
Skákhátíðin fór fram dagana 14.-18. ágúst, Teflt var til heiðurs Heikki Westerinen sem fagnar 75 ára afmæli í ár og var meðal þátttakenda. Teflt var í þremur flokkum. Öldungaflokki (65+) og tveim ungmennaflokkum (u20). Um var að ræða túrbó-mót.
Westerinen (2297) kom sá og sigraði í öldungaflokknum. Hann vann öldungaflokkinn ásamt Yrjo Rantanen (2302)
Cup of Lviv
Í dag hefst alþjóðlegt túrbómót í Lviv í Úkraínu. Tefldar eru níu umferðir á 5 dögum. Þátt taka alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2453), stórmeistarinn, Helgi Áss Grétarsson (2412) og FIDE-meistarinn Páll Agnar Þórarinsson (2238).
Ekki virðist vera boðið uppá beinar útsendingar frá mótinu.
Í fyrstu umferð tefla þeir allri við töluvert stigalægri andstæðinga (1391-1794). Tvær umferðir fara fram í dag.
Í gær fór fram upphitunarmót þar sem tefld var atskák. Helgi Áss hlaut 6 vinninga í 9 umferðum en Margeir Pétursson (2395) 5 vinninga.
Lokastaðan á Chess-Results.
Olomouc Chess Summer 2019
Lenka Ptácníková (2089) tók þátt í alþjóðulegu móti níu umferða móti í Olomouc í Tékklandi dagana 10.-17. ágúst.
Lenka átti góðan endasprett og vann tvær síðustu umferðirnar. Hún hlaut 6 vinninga í 9 skákum og hækkar um 9 stig fyrir frammistöðu sína.
Hennefer ELO Summer Open
Gauti Páll Jónsson (2057) er meðal keppenda á þessu fimm umferða móti sem lýkur í dag.
Hann hefur hlotið 2 vinninga eftir 4 umferðir. Lokaumferðin fer fram í dag.

















