Helgi kampakátur í sjónvarpviðtal við RÚV skömmu eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í húsi. Mynd: BÍvarK.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2412) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti á grísku eyjunni Krít. Hans fyrsta mót af þremur þar en hann teflir kappskák á hverjum degi til 19. september nk!

Hann vann í fyrstu umferð en andstæðingurinn var ekki ýkja sterkur (1350). Ekki heldur fyrri andstæðingur dagsins (1810) en  tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 7 en sú síðari hefst kl. 13.

 

- Auglýsing -