Íslandsmót öldunga (65+) hófst í gær. Teflt var í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur. Mótið er afar vel skipað en 9 af 10 keppendum mótsins hafa teflt í landsliðsflokki. Tveir alþjóðlegir meistarar eru á keppendalistanum
Sá tíundi, Þór Valtýsson, er margfaldur Norðurlands- og Akureyrarmeistari. Keppendur á mótinu hefðu hins vegar gjarnan mátt vera fleiri en vonandi eykst þátttakan á komandi árum. Mikil gróska hefur verið í skákstarfi eldri skákmanna undanfarin ár bæði í Ásgarði í Reykjavík, Strandbergi í Hafnarfirði og víðar. Eldri skákmenn hafa þó að mestu haldið sig við styttri skákirnar. Nú til viðbótar hefur bæst við frábært tækifæri til að tefla kappskák.

Fjórar skákir voru tefldar í gær en Jón Kristinsson (2107) tók hálf vinnings yfirsetu. Áskell Örn Kárason (2252) vann Sævar Bjarnason (2096) í uppgjöri alþjóðlegu meistarana. Ólafur S. Ásgrímsson, frumkvöðull í skákstarfi öðlingamóta, lék fyrsta leikinn fyrir Sævar. Júlíus Friðjónsson (2115) lagði Þór Valtýsson (1860) að velli. Öðrum skákum lauk með jafntefli.
Úrslit 1. umferðar

Önnur umferð fer fram á fimmtudaginn og hefst kl. 16. Þá mætast:
Mótið á Chess-Results.















