Davíð Kjartansson að tafli í Túnis. Mynd: Heimasíða mótsins

Í gær var tefld leifurskák að hætti Víkinga á Chess.com. Hluti af sókninni á netinu sem hefur gengið svo vel. 36 keppendur tóku þátt. Alþjóðlegi meistarinn Davíð Kjartansson var í miklu stuði og vann með miklum yfirburðum. Annar varð Örn Leó Jóhannsson og þriðji varð Stefán Steingrímur Bergsson.

Röð efstu manna

  1. IM Davíð Kjartansson 118 stig
  2. Örn Leó Jóhannsson 86 stig
  3. FA Stefán Steingrímur Bergsson 72 stig
  4. Tómas Veigar Sigurðarson 61 stig
  5. labbimatur 55 stig
  6. Magnús Matthíasson 53 stig
  7. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 52 stig
  8. Elsa María Kristínadóttir 43 stig
  9. Gunnar Freyr Gunnarsson 41 stig
  10. Stefán Þór Sigurjónsson 35 stig

Lokastaðan og skákir mótsins

Sóknin heldur áfram á mánudaginn með hraðskákmóti (KR) þar sem tefldar eru 7 mínútna hraðskákir.

Í dag kl. 11 fara fram mót á Chess.com fyrir grunnskólanemendur víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu.

Nánar hér:

Á morgun kl. 17 verður mót í syrpunni Skólanetskákmót Íslands. Nánar kynnt með sérfrétt í dag.

 

- Auglýsing -