Magnús vann Fabi í gær. Mynd: Lennart Ootes/Norway Chess.

Magnús Carlsen (2863) og Fabiano Caruana (2828) höfðu gert nítján jafntefli í röð í kappskák þegar þeir mættust í 4. umferð Altibox Norway Chess mótsins í gær. Carlsen lagði keppinaut sinn loks að velli í gær og er nú efstur á mótinu.

Skákum Levon Aronian og Alireza Firouzja sem Aryan Tari og Jan-Krzysztof Duda gerðu jaftntefli. Íraninn landflótta vann Armenann í bráðabana og sama gerði Tari á móti Duda og kræktu með því auka hálft stig.

Nánar á Chess24.

Frídagur er í dag. Fimmta umferð fer fram á morgun. Þá tefla saman: Duda-Carlsen, Firouzja-Tari og Caruana og Aronian.

Staðan

Umferðir hefjast kl. 15. Vladmir Kramnik og Judith Polgar eru með skákskýringar.

Fyrirkomulag mótsins

Mótið stendur 5.-16. október. Sex keppendur taka þátt og tefla tvöfalda umferð. Í kappskákinni hafa keppendur klukkustundir á skákina og enginn viðbótartími fyrr en eftir 40 leiki en þá fá keppendur 10 sekúndur á hvern leik. Verði jafntefli verður tefldur bráðabani. Hvítur fær tíu mínútur gegn sjö mínútum svarts. Svörtum dugar jafntefli. Fyrir sigur í hefðbundinni skák eru gefin 3 stig. Fyrir sigur í bráðabana eru gefin 1,5 stig en 1 stig fyrir tap í bráðabana.

- Auglýsing -