Alþjóðlega mótinu í Árósum í Danmörku lauk í dag. Henrik Danielsen gerði jafntefli í lokaumferðinni en Hilmir Freyr Heimisson tapaði. Sömu úrslit urðu hjá þeim í gær. Henrik kláraði einnig í dag ókláraða skák úr fyrstu umferð. Sjá nánar um það tilvik hér.
Henrik hlaut 6 vinninga og endaði í fimmta sæti á mótinu. Hilmir átti slæman endasprett og endaði með 3½ vinning og í sjötta sæti. Báðir tefldu þeir í samræmi við skákstigastyrkleika og tapa báðir einu skákstigi.
Mótstaflan
Sjá umfjöllun um mótið á heimasíðu danska skáksambandsins.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjst flestar kl. 16)
- Auglýsing -














