Verðlaunahafar á Friðriksmótinu 2019.

Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák – fer fram að þessu sinni  á netinu og verður háð í tveimur hlutum. Undankeppnin fer fram miðvikudaginn 9. desember á Chess.com og hefst kl. 20:00. Allir geta tekið þátt! Skráningarform neðar hér á skak.is.

Í undankeppninni verður barist um fjögur sæti í úrslitakeppninni, sem fram fer á laugardaginn á Tornelo, og vegleg aukaverðlaun. Tímamörk verða 3+2 og tefldar verða 11 umferðir. Stuðst verður við oddastigareglur Chess.com verði menn jafnir. Engin skákstjóri er í undankeppninni og allir reglur Chess.com gilda. Allar skákir í mótinu verða yfirfarnar með tilliti til svindls samkvæmt reglum Chess.com.



Í úrslitakeppninni fá tíu stigahæstu skákmenn landsins beinan keppnisrétt auk þess sem stjórn Skáksambands Íslands úthlutaði tveimur boðssætum. Komi til forfalla einhverja keppenda koma varamenn úr undankeppninni.

Eftirtaldir tefla í úrslitakeppninni á laugardaginn (allir við alla).

  1. SM Hjörvar Steinn Grétarsson (2662) -stig
  2. SM Héðinn Steingrímsson (2590) – stig
  3. SM Hannes Hlífar Stefánsson (2532) – stig
  4. SM Helgi Áss Grétarsson (2503) -stig
  5. SM Jóhann Hjartarson (2502) -stig
  6. AM Arnar Gunnarsson (2425) – stig
  7. SM Þröstur Þórhallsson (2419) – stig
  8. FM Vignir Vatnar Stefánsson (2404) – stig
  9. AM Jón Viktor Gunnarsson (2402) – stig
  10. AM Björn Þorfinnsson (2369) – stig
  11. AM Guðmundur Kjartansson (2329) – boð
  12. SM Bragi Þorfinnsson (2306) – boð
  13. Undankeppni
  14. Undankeppni
  15. Undankeppni
  16. Undankeppni

Í úrslitakeppninni verður skylda að fyrir keppendur að vera í mynd, tengdir við Zoom-forritið og deila skjánum með skákstjóra. Að öðrum kosti missa menn rétt til verðlauna.

AÐALVERÐLAUN

  1. 100.000 kr.
  2.   60.000 kr.
  3.   50.000 kr.
  4.   30.000 kr.
  5.   20.000 kr.

Séu tveir eða fleiri jafnir í efsta sætinu verður oddastigaútreikningur (FIDE-meðmæli) látinn ráða Íslandsmeistaratitlinum. Verðlaunafé skiptist jafnt.

AUKAVERÐLAUN 

Aukaverðlaunin eru útkljáð í undankeppninni og fara fram eftir hefðbundnum reglum.

  • Efsti maður með 2001-2200 skákstig 20.000 kr.
  • Efsti maður með 2000 stig og minna: 10.000 kr.
  • Efsta konan: 10.000 kr.
  • Efsti strákur 16 ára og yngri (2004 eða síðar): 10.000 kr.
  • Efsta stúlka 16 ára og yngri (2004 eða síðar): 10.000 kr.
  • Efsti skákmaður 65 eða eldri (1955 eða fyrr): 10.000 kr.

Aukaverðlaun eru miðað við alþjóðleg hraðskákstig 1. desember sl. (alþjóðleg skákstig til vara hafi menn ekki alþjóðleg hraðskákstig). Oddastigaútreikningur Chess.com ræður séu menn jafnir og efstir.

Hver keppandi getur aðeins unnin ein aukaverðlaun og eru aukaverðlaunin valin í þeirri röð sem fram kemur að ofan.

FYRRI SIGURVEGARAR

  • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2018 – Jóhann Hjartarson
  • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
  • 2016 – Jóhann Hjartarson
  • 2015 – Þröstur Þórhallsson
  • 2014 – Héðinn Steingrímsson
  • 2013 – Helgi Ólafsson
  • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 – Henrik Danielsen
  • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
  • 2009 – Héðinn Steingrímsson
  • 2008 – Helgi Ólafsson
  • 2007 – Héðinn Steingrímsson
  • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson
- Auglýsing -