Vignir Vatnar Stefánsson (2314) vann sigur á Skákþingi Reykjavíkur sem lauk í gærkveldi. Hann vann Guðmund Kjartansson (2488) í lokaumferðinni í spennandi skák. Þar sem Vignir er hvorki í reykvísku félagi nei með lögheimili í höfuðborginni getur hann ekki orðið skákmeistari Reykjavíkur. Þann titil fær Hjörvar Steinn Grétarsson (2576), sem er í reykvísku félagi, sem varð annar eftir að hafa lagt Davíð Kjartansson (2326) að velli.
Árangur Vignis var frábær á mótinu. Hann hlaut 8 vinninga og lagði Hjörvar, Guðmund og Davíð alla að velli og vann fjórar síðustu skákirnar. Var taplaus en leyfði tvö jafntefli gegn Stephani Briem (2102) og Þorvarði F. Ólafssyni (2118). Hann hækkar um 19 stig fyrir frammistöðu sína.
Helstu úrslit 8. umferðar
Röð efstu manna
Við höfum þegar farið yfir þrjá efstu menn mótsins. Stephan Briem (2102) og Pétur Pálmi Harðarson (2086) áttu báðir frábært mót og urðu í 4.-5. sæti með 6½ vinning.
Mestu stigahækkanir
Arnar Freyr Orrason hækkar mest fyrir frammistöðu sína eða um 82 stig. Næstir eru Arnar Milutin Heiðarsson (+67) og Arnar Logi Kjartansson (+44). Eftirtaldir skákmenn hækka um 10 stig eða fleiri:
| Orrason Arnar Freyr | 82 |
| Heidarsson Arnar Milutin | 67 |
| Kjartansson Arnar Logi | 44 |
| Briem Stephan | 40 |
| Gudnyjarson Sigurdur Pall | 34 |
| Kristjansson Halldor | 32 |
| Finnsson Johann Arnar | 31 |
| Moller Tomas | 28 |
| Johannsdottir Johanna Bjorg | 28 |
| Hardarson Petur Palmi | 26 |
| Jonsson Johann | 22 |
| Gudmundsson Gunnar Erik | 21 |
| Jonsson Gauti Pall | 21 |
| Thorisson Benedikt | 20 |
| Stefansson Vignir Vatnar | 19 |
| Heidarsson Mikael Bjarki | 16 |
| Kjartansson Matthias Bjorgvin | 10 |




















