Magnúsi var afar létt eftir að hafa lagt Daniil Dubov að velli.

Átta manna úrslit Óperu-mótsins lauk í gær á Chess24. Magnús Carlsen komst naumlega áfram gegn Daniil Dubov. Rússinn vann síðari einvígið örugglega, 2½-½, eftir að hafa yfirspilað heimsmeistarann tvívegis í 25 leikjum. Þeir gerðu jafntefli í hraðskákeinvígi í framhaldinu og þurfti til bráðabana þar sem Norðmaðurinn hafði sigur.

Auk Magnúsar, eru MVL, Wesley So og Teimor Radjabov í undanúrslitum. Þurftu mismikið fyrir hlutunum að hafa. So vann Duda í tveim skákum og það dugði þar sem hann vann fyrra einvígið. Jafntefli varð hjá MVL og Aronian og það var nóg fyrir Frakkann sem vann fyrra einvígið.  Anish Giri og Teimur Radjbov gerðu jafntefli í síðara einvíginu eins og því fyrra og þar þurfti að framlengja. Aserinn vann hraðskákina 1½-½.

Magnús mætir MVL í undanúrslitum. Í hinum einvíginu mætast So og Radjabov. Undanúrslitin hefjast í dag.

Nánar á Chess24.

 

- Auglýsing -