
Evrópukeppni þingmanna fór fram á Tornelo-netþjóninum, 16. apríl. Í fyrsta skipti sem það mót fer fram. Þrír íslenskir skákmenn tóku þátt fyrir Íslands hönd. Teflt var í fundarherbergi forsætisnefndar.
Brynjar Þór Níelsson, hlaut 3 vinninga í skákunum sjö, og Páll Magnússon og Karl Gauti Hjaltason sem fengu 2,5 vinning hvor. Allir voru þeir frekar seinheppnir og gátu betur.
Moldóvski stórmeistarinn Viktor Bologan vann sigur á mótinu og kollegi hans úr stórmeistarastétt, Loek Van Wely varð annar.
Ísland lenti í fimmta sæti í landskeppninni en Armenar höfðu þar sigur.
Gunnar Björnsson og Ingvar Þór Jóhannesson voru þingmönnunum innan handar. Góður andi var meðal íslensku liðsmannanna og oft hlegið dátt. Langafi Stefáns Bergssonar, Bernharð Stefánsson, vakti yfir íslenska liðinu, en mynd er af honum í fundarherberginu.
















