Skákdeild Fjölnis fagnar sumrinu með glæsilegu sumarskákmóti fyrir öll grunnskólabörn í Rimaskóla fimmtudaginn 22. apríl frá kl. 11:00 – 13:15. Þátttakendur eru hvattir til að mæta 15 mínútum fyrr til skráningar.
– 30 + verðlaun og happadrættisvinningar frá Hagkaup , EmmEss, Pizzan , Bókabúðinni Grafarvogi og
COCO´S
– Verðlaunabikarar frá Rótarýklúbbi Grafarvogs
– Veitingar í mótslok frá Hagkaup, Emmess og Ekrunni
Tefldar verða sex umferðir. Spritt og aðstaða skv. sóttvarnareglum, hámark 50 í hverjum skáksal og nóg rými.
Grunnskólakrakkar frá skákfélögunum í Reykjavík, Kópavogi, Selfossi, Vestmannaeyjum eru hvattir til að fagna sumrinu með nokkrum skákum, þiggja veitingar og vinna til verðlauna eða happadrættisvinninga.
Stætó – Leið 6 – Spöng stoppar mjög nálægt Rimaskóla.
Skákstjórar verða þeir Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og Gauti Páll Jónsson skákkennari og stjórnarmaður í SÍ.













