Í byrjun maí mánaðar lauk vikulegum skákæfingum Fjölnis með vali á afreks-og æfingameisturum deildarinnar. Skákæfingarnar voru ótrúlega fjölsóttar í vetur, um 40 – 60 áhugasamir krakkar mættir á hverja æfingu.
Sigrún Tara Sigurðardóttir nýkrýndur Íslandsmeistari með skáksveit Rimaskóla, 1. – 3. bekkur, var valin afreksmeistari vetrarins. Hún hefur tekið miklum framförum í skáklistinni í vetur og er verðugur fulltrúi allra þeirra stúlkna sem unnið hafa til verðlauna í vetur hjá Fjölni og á grunnskólamótum vetrarins.
Það var ekki auðvelt að velja æfingameistara úr fjölmennum hópi skákkrakka sem hafa mætt á allar æfingarnar í vetur.
Það voru þeir Ísak Ernir Guðmundsson og Ingi Alexander Sveinbjörnsson sem viðurkenninguna hlut. Ísak Ernir hóf að ráði að sækja æfingar í vetur en Ingi Alexander hefur sinnt skákæfingum nánast frá byrjun skólgöngu.
Skákdeild Fjölnis óskar þessum flottu skákkrökkum til hamingju með verðlaunin og þakkar öllum öðrum sem fjölmenntu á æfingar fyrir ánægjulegan vetur. Umsjón með starfinu í hafði Helgi formaður skákdeildar og naut góðrar aðstoðar Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur frá Skákskóla Íslands, Jóhanni Arnari, Arnóri og Joshua frá Fjölni.












