EM í netskák – undankeppni um sæti á Heimsbikarmótinu hófst í gær. Tveir íslenskir fulltrúar taka þátt í mótinu; stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson (2500) og Helgi Áss Grétarsson (2441). Þeir freista þess að fylgja Hjörvari Steini Grétarssyni á heimsbikarmótið á Sochi í Rússlandi.
Félagarnir úr Taflfélagi Reykjavíkur töpuðu báðir í gær. Helgi fyrir rússneska stórmeistaranum Aleksandr Shimanov (2597) og Guðmundur fyrir gríska stórmeistaranum Stelios Halkias (2567)
Þeir fá annað tækifæri í dag gegn sömu mönnum í dag og þurfa þá nauðsynlega að vinna til að komast í aðra umferð. Vinni þeir síðari kappskákina verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma.
Tenglar á skákir dagsins á Chess24.
- GM Helgi Áss Grétarsson (2441) – GM Aleksandr Shimanov (2597), Rússlandi
- GM Guðmundur Kjartansson (2500) – GM Stelios Halkias (2567), Grikklandi
Helstu tenglar
- Pörunartré mótsins
- Beinar útsendingar á Chess24
- Mótið á Tornelo
- Mótið á Chess-Results
- Mótsreglur mótsins
- Auglýsing -















