Íslandsmót kvenna hófst í kvöld. Teflt er í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Sjö skákkonur taka þátt og var hart barist í fyrstu umferð. Svo fór að Hrund Hauksdóttir  (1819) og Lenka Ptácníková (2107) unnu sínar skákir. Hrund vann Ulker Gasanova (1534) og Lenka vann Lisseth Acevedo Mendez (1829) eftir að Liss lék af sér í hróksendatafli.

Lenka var sigurviss eftir sigurleikinn Hc6!

Skák Batel Goitom Haile (1625) og Tinnu Kristínu Finnbogadóttur (1843) lauk með jafntefli. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1990) sat yfir í fyrstu umferð.

Önnur umferð fer fram á morgun og hefst kl. 18. Þá teflir Lenka við Batel, Hrund mætir Tinnu og Jóhanna og Lisseth etja kappi. Ulker situr yfir.

Hér er yfirferð yfir skákir fyrstu umferðar og það er FIDE meistarinn Ingvar Þór Jóhannesson sem skýrir.

Rétt er að geta þess að áhorfendur eru velkomnir á skákstað. Svo skemmtilega vill til að það er í fyrsta skipti á móti á vegum Skáksamband Íslands síðan Íslandsmót kvenna fór fram í Garðabæ fyrir um 15 mánuðum síðan að aðgangur áhorfenda er heimill.

 

- Auglýsing -