Ný alþjóðleg skákstig, sem taka gildi á morgun, 1. júní, eru komin út. 397 skákmenn teljast virkir og fjölgar þeim úr 9 frá síðasta lista. Hjörvar Steinn Grétarsson (2603) er langstigahæstur íslenskra skákmanna. Er sá fjórði í sögunni til að rífa 2600 skákstigamúrinn. Aðeins Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson hafa áður afrekað það. Arnór Gunnlaugsson hækkar mest frá síðasta skáklista.
Topp 20
Hjörvar Steinn Grétarsson (2603) er langstigahæsti skákmaður þjóðarinnar. Hefur 84 stiga forskot á Héðin Steingrímsson og Jóhann Hjartarson (2519) sem koma næstir.

Mestu hækkanir
Arnór Gunnlaugsson (+72) hækkar mest allra á stigum frá maí-listanum. Í næstu sætum eru Alexander Oliver Mai (+53), Sigurður Ingason og Þorvarður Fannar Ólafsson (+32).

Stigahæstu ungmenni landsins (u20)
Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2359) er stigahæsta ungmenni landsins. Í næstu sætum eru Hilmir Freyr Heimisson (2317) og Aron Þór Maí (2110).

Stigahæstu skákkonur landsins
Lenka Ptácníková (2098) er stigahæsta kona landsins. Í næstu sætum eru Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2009) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1995).

Stigahæstu öldungar landsins (+65)
Áskell Örn Kárason (2270) er stigahæsti öldungur landsins, 65 ára og eldri. Í næstu sætum eru Kristán Guðmundsson (2234) og Björgvin Viglundsson (2219).
10 stigahæstu öldungar landsins.
Reiknuð skákmót

Heimlistinn










