Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson mun í þessari viku tefla einvígi við sænska stórmeistarann Tiger Hillarp Person. Skáksamband Íslands stendur fyrir einvíginu í góðri samvinnu við Skákskóla Íslands, Skákdeild Breiðabliks, Skákfélag Akureyrar og Vinnustofu Kjarvals.
Tefldar verðar fjórar kappskákir með umhugsunartímanum 90 mínútur á 40 leiki og 15 mínútur til að klára með 30 sekúndna viðbót á leik frá leik eitt. Skákirnar hefjast klukkan 13:30 dagana 4.-7. október og er teflt við góðar aðstæður á Vinnustofu Kjarvals við Austurvöll. Skákirnar verða í beinni útsendingu. Föstudaginn 8. október tefla Vignir Vatnar og Tiger Hillarp hraðskákeinvígi.
Þriðjudagskvöldið 5. október klukkan 20:00 standa SÍ og Skákskólinn fyrir fyrirlestri Tigers fyrir u25 hópinn og kvennalandsliðið. Fyrirlesturinn verður á sal Skákskólans. Einnig verður fyrirlestur fyrir sama hópa föstudaginn 9. október en tímasetning mun liggja fyrir snemma í næstu viku.
Alþjóðlegi skákmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson er átján ára gamall og efnilegasti skákmaður landsins. Vignir er fyrir löngu orðinn öllu skákfólki vel kunnur en hann vakti mikla athygli sex ára gamall þegar hann lagði elstu nemendur grunnskóla síns að velli í fjöltefli. Frá þeim tíma hefur Vignir unnið marga sigra hér á landi sem ytra og er farinn að banka hressilega á dyr landsliðsins. Hann teflir grimmt um þessar mundir og dvaldi í Serbíu liðið sumar þar sem hann tefldi á þremur mótum með góðum árangri.
Sænski stórmeistarinn og atvinnumaðurinn Tiger Hillarp Person hefur verið einn sterkasti skákmaður Svía um árabil og tvíveigis orðið sænskur meistari ásamt því að verða Norðurlandameistari um aldamótin. Hann er þekktur fyrir skemmtilegan og snarpan skákstíl og skrifaði bók um hið vinsæla byrjanakerfi sem kennt er við hann; Tiger´s Modern. Tiger er ekki maður einhamur því ásamt skákiðkun sinni hefur hann náð góðum árangri í Shogi sem er ævaforn japönsk hugaríþrótt.
Með einvíginu er markmiðið að gefa hinum víðförla Vigni Vatnari tækifæri á að tefla á heimavelli gegn reyndum stórmeistara og bæta þar með enn við sinn sístækkandi reynslubanka.
















