Hallgrímur Steinsson, með bikarinn á lofti, Sigurjón Þorkelsson við hlið hans varð í öðru sæti. Í baksýn er málverk af Helga Ólafssyni stórmeistara, en hann hefur náð lengst í skákinni af öllum Eyjamönnum.

Skákþingi Vestmannaeyja 2022 sem hófst 31. mars lauk 8. maí í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarveg 9. Keppendur á mótinu voru 10 talsins á öllum aldri og var 65 ára aldursmunur á yngsta og elstu keppendum. Þetta sýnir að skákin spyr ekki um aldur þeirra sem tefla og taka þátt í skákmótum. Tefldar voru níu umferðir á skákþinginu, umhugsunartími á skák var 90 mín. á skák á hvorn keppanda + 30 sek. á leik.

Fljótlega varð ljóst að keppnin um efsta sætið stóð á milli Sigurjóns Þorkelssonar, skákmeistara Vm. 2021 og til margra ára og Hallgríms Steinssonar, en Halli varð skákmeistari Vm. 2019. Þeir mættust í síðustu skák mótsins sem tefld var á sunnudagskvöldið. Fyrir skákina var Hallgrímur kominn með fullt hús, 8 vinninga og Sigurjón með 7,5 vinning. Skákinni lauk með jafntefli eftir snarpa viðureign og varð því Hallgrímur Steinsson, Skákmeistari Vestmannaeyja 2022 með 8,5 vinninga. Sigurjón Þorkelsson varð í 2. sæti með 8 vinninga og síðan komu jafnir í 3.-5 sæti, sá yngsti og elstu keppendur á mótinu, þeir Þórarinn Ingi Ólafsson, Sæþór Ingi Sæmundarson og Arnar Sigurmundsson allir með 5 vinninga. Í 6. sæti Guðgeir Jónsson með 4,5 vinning og í sjöunda sæti Stefán Gíslason með 4 vinninga.

Mótstaflan á Chess-Results

Mótsstjóri var Sæmundur Einarsson og var öll framkvæmd mótsins til fyrirmyndar. Skákkennslu ungmenna í GRV í skákheimili TV á vorönn 2022 er langt komin og lýkur í næstu viku enda komið sumar.

 

 

- Auglýsing -