Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2566) er efstur með fullt hús að loknum þremur umferðum á Boðsmóti TR sem er endurvakið í ár eftir um 15 ára hlé. Guðni Stefán Pétursson (2019) og Bragi Halldórsson (2043) eru í 2.-3. sæti með 2½ vinning.
Töluvert hefur verið um óvænt úrslit. Má þar nefna að Benedikt Þórisson (1757) vann Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2184) í fyrstu umferð og að Kristján Örn Elíasson (1768) lagði Alexander Oliver Mai (2183) að velli í þriðju umferð.

Tvær síðustu umferðir mótsins fara fram í dag. Fyrri umferðin hefst kl. 11.
17 keppendur taka þátt.
- Auglýsing -















