Hannes að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2534) vann pólska FIDE-meistarann Mieszko Mis (2388) í áttundu og næstsíðustu umferð alþjóðlega mótsins í Przeworsk í Póllandi sem fram fór í gær. Hannes hefur 5½ vinning og er í 2.-3. sæti.

Níunda og síðasta umferðin er hafin. Hannes teflir við pólska alþjóðlega meistarann Dariusz Mikrut (2361). Þegar þetta er ritað eru 22 leikir búnir og Hannes með mun betri stöðu.

Um er að ræða 10 manna lokaðan flokk þar sem meðalstigin eru 2445 skákstig. Hannes er næststigahæstur keppenda.

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu opnu móti í Cattolica á Ítalíu sem fram fer í 4.-11. júní. Hann vann í fyrstu umferð Konstantin Andreev (2191) sem teflir undir fána FIDE en tefldi áður undir merkjum Rússa. Gummi mætir þýska FIDE-meistaranum Tobias Kolb (2349) í 2. umferð sem fram fer í dag.

Upphaflega var ranglega skrifað að Guðmundur hafi tapað. Ritstjóri hefur greinilega ekki verið vaknaður þegar hann las Chess-Results í morgun. 

54 keppendur frá 19 löndum taka þátt og þar af 8 stórmeistarar.  Guðmundur er 10. í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -