Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) fékk einn vinning í tveimur skákum á alþjóðlega mótinu í Cattolica á Ítalíu í gær.
Í fyrri skák gærdagsins vann hann Úkraínumanninn Petro Lohvinov (2232) en í þeirri síðari tapaði hann fyrir enska FIDE-meistaranum Jonab B Willow (2393).
Guðmundur hefur 4 vinninga eftir 7 umferðir og er í 14.-23. sæti. Áttunda og næstsíðsta umferð fer fram í dag. Gummi teflir þá við Indverjann Kulkarni Ojas (2226).
54 keppendur frá 19 löndum taka þátt og þar af 8 stórmeistarar. Guðmundur er 10. í stigaröð keppenda.
Í dag hefst á mót í Prag á Tékklandi þar sem átta íslenskir skákmenn eru skráðir til leiks. Skákmennirnir, sem koma frá Íslandi, lentu í því að flugi þeirra í gær var aflýst. Vélin fór hins vegar í loftið kl. 6 í morgun og ættu þeir að ná í tæka tíð á skákstað.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjst flestar kl. 13)
















