Framboðsfrestur til forseta FIDE rann út í fyrradag. Fjórir bjóða sig fram sem forseti FIDE. Þar á meðal núverandi forseti, Arkady Dvorkovich, og núverandi varaforseti FIDE, Bachar Koutaly.
Frambjóðendur til forseta og varaforseta FIDE eru sem hér segir:
- Andrii Baryshpolets (Úkraínu) og Peter-Heine Nielsen (Danmörku)
- Inalbek Cheripov (Belgíu) og Lewis Ncube (Sambíu)
- Arkady Dvorkovich (Rússlandi) og Anand Viswanathan (Indlandi)
- Bachar Kouatly (Frakklandi) og Ian Wilkinson (Jamaíka)
Andrii Baryshpolets er úkraínskur stórmeistari og varaforsetaefni hans er Peter Heine Nielsen danskur stórmeistari sem í dag er þekktastur fyrir að vera aðstoðarmaður Magnúsar Carlsen.
Inalbek Cheribov er Belgi af rússneskum ættum. Nokkra athygli vekur að úkraínska skáksambandið veitir honum stuðningsyfirlýsingu en ekki Baryshpolets. Lewis Ncube hefur verið forseti afríska skáksambandsins um langt árabil. .
Rússinn Arkady Dvorkovich hefur verið forseti FIDE síðan 2018. Ekki þarf að kynna varaforsetaefni hans, fimmtánda heimsmeistarann, Vishy Anand, fyrir skákáhugamönnum.
Bachar Kouatly er franskur stórmeistari af sýrlenskum ættum. Hann var forseti franska skáksambandsins þar til fyrir skemmstu og er núverandi varaforseti (deputy) FIDE. Ian Wilkinson er kunnur lögfræðingur.
Kosningarnar fara fram 7. ágúst nk. samhliða ólympíuskákmótinu í Chennai í Indlandi.















