Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2455) vann indverska FIDE-meistarann Aness Mohamed (2243) í 5. umferð alþjóðlegs móts í Cattolica á Ítalíu sem fram fór í gær. Guðmundur hefur 3 vinninga og er í 11.-22. sæti.
Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 8. Þá teflir Gummi við 17 ára strák frá Úkraínu, Petro Lohvinov (2232), að nafni. Síðari umferðin hefst kl. 14:30.
54 keppendur frá 19 löndum taka þátt og þar af 8 stórmeistarar. Guðmundur er 10. í stigaröð keppenda.
Á morgun hefst á mót í Prag á Tékklandi þar sem átta íslenskir skákmenn eru skráðir til leiks.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjst flestar kl. 13)
- Auglýsing -

















