Í seinustu umferð sóttum við fjóra vinninga af sjö mögulegum.
Hannes Hlífar tapaði gegn sigurvegara mótsins Alexander Motylev (2619) þar sem Hannes fékk erfiða stöðu úr byrjuninni og leystist skákin upp í endatafl þar sem Hannes var með slakan riddara á móti sterkum biskup hjá Alexander. Undirritaður reyndi að átta sig á hvað væri í gangi í skákinni en Alexander Motylev er landsliðsþjálfari rússneska landsliðsins og líklega aðeins betur með á nótunum og sigraði okkar mann sannfærandi.
Hilmir Freyr gerði jafntefli gegn IM Craig Hilby (2420) skákin var í jafnvægi nær allan tímann og endaði jafntefli, vel tefld skák hjá báðum.
Vignir Vatnar lék að sjálfsögðu 1.b3 og vann sannfærandi sigur á móti heimamanni með tæplega 2300 stig. Vignir er búinn að finna gleðina á ný og fær núna góða hvíld fyrir ólympíumótið.
Benedikt Briem tapaði í 10 leikjum gegn rúmlega 2300 stiga heimamanni með svörtu, eftir að andstæðingur hans náði að læsa drottningu BB inni í Catalan.
Eins og Óskar Hrafn orðaði svo vel í gærkvöldi „ferð ekki í gegnum allt á bleiku skýi“ sama má segja um Benedikt Briem, gaurinn er búinn að vera á bleiku skýi allt mótið og átti frábært mót, það hlaut að koma að smá hiksti.
Aleksandr Domalchuk sigraði Þjóðverja með 1950 stig og endar mótið í tæplega 100 stiga gróða! Frábært mót hjá Aleksandr og er undirritaður á því að Aleksandr muni rjúka upp stigalistann á næstu mánuðum og árum.
Alexander Oliver ákvað að hætta að vinna og tapa til skiptis og gerði jafntefli í dag – ágætis mót hjá Alexander en 0/4 með hvítt er eitthvað sem okkar maður þarf að skoða.
Matthías Björgvin sigraði stigalausan andstæðing sannfærandi og endar mótið á góðum nótum.
Niðurstaða:
Hannes Hlífar endar mótið með 6.5/9 og er á pari stigalega séð.
Vignir Vatnar endar með 6/9 eftir góðan endasprett, taplaus í seinustu 5 skákum. Endar á að tapa 18 stigum sem er ágætis „damage control“ þar sem þetta mun verr út á tímabili.
Vignir er búinn að finna skákgleðina á ný og mætir tvíefldur til leiks á Ólympíumótið.
Hilmir Freyr endar sömuleiðis með 6 vinninga og tapar um 17 stigum.
Fyrstu tvær umferðirnar léku Hilmi grátt en ef horft er framhjá þeim var þetta ágætis mót hjá Hilmi.
Aleksandr Domalchuk endar með 5.5 vinning og græðir 95 stig, algjörlega frábært mót hjá Aleksandr. Undirritaður er á því að hann verði orðinn alþjóðlegur meistari áður en langt um líður.
Benedikt Briem endar með 5 vinninga og græðir 37 stig.
Benedikt hefur aldrei verið hærri á stigum og er að taka miklum framförum.
Undirritaður er á því að Benedikt verði rétt eins og Alexandr orðinn alþjóðlegur meistari innan nokkurra ára.
Alexander Oliver endar með 4.5 vinning og tefldi sirka á pari.
Vann stigalægri og tapaði gegn stigahærri.
Alexander er með rétta „attitudeið“ til þess að verða algjörlega frábær skákmaður.
Matthías Björgvin endar með þrjá vinninga og græðir 28 stig.
Mikael Bjarki endar sömuleiðis með þrjá vinninga og tefldi á pari.
Í heildina sótti hópurinn 125 elóstig inn í íslenska hagkerfið.
Eftir að hafa fengið að fylgja þessum frábæra hópi skákmanna á þessu móti, er ég algjörlega á því að framtíðin er björt í íslensku skáklífi, ekki bara eru þetta góðir skákmenn heldur líka góðar fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur.
Ég vil enda þennan seinasta pistil á að þakka Halldóri Grétari fyrir að hafa séð um þessa ferð frá A til Ö, þegar þessir strákar verða eldri munu þeir átta sig enn betur á því hversu mikil verðmæti eru í manni eins og Halldóri Grétari.
Undirritaður þakkar öllum þeim sem fylgdust með.
Þar til næst.
Bkv,
Birkir Karl
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)















