Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Vignir Vatnar og Hilmir Freyr í Svíþjóð og Gauti Páll, Adam og Jósef í Tékklandi
Uppsala Chess Open
Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2445) tekur þátt í SM-flokki á alþjóðlegu móti í Uppsölum í Svíþjóð.
Vignir gerði jafntefli við sænska alþjóðlega meistarann Hampus Sörensen (2383) í fimmtu umferð í gær. Vignir hefur 4 vinninga og er efstur á mótinu.
Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast þær kl. 8 og 14. Hægt er að fylgjast með Vigni í beinni. Vignir Vatnar mætir í fyrri skák dagsins indversku skákkonunni Savitha Shri (2374) sem er alþjóðlegur meistari kvenna og í þeirri síðari úkraínska stórmeistaranum Li Min Peng (2501).
Alls taka 10 skákmenn í mótinu sem fram fer 8.-14. ágúst. Vignir er þriðji í stigaröð keppenda.
Manheim IM
Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2323). Hann tapaði í gær fyrir sænska FIDE-meistaranum Kaan Kuckuskari (2398).
Hilmir hefur 3 vinninga.
Lokaumferðin fer fram í dag og hefst kl. 8. Vignir teflir við norska FIDE-meistarann Jens Ingebretsen (2325). Hægt er að fylgjast með Hilmi í beinni.
Alls taka 10 skákmenn þátt sem fram fer 6.-12. ágúst. Hilmir er sjötti í stigaröð keppenda.
Summer Prague Open
Áttunda og næstsíðasta umferð fór fram í gær.
Gauti Páll Jónsson (2071) og Adam Omarsson (1837) tefla í a-flokki. Gauti vann í gær og hefur 4½ vinning. Adam tapaði og hefur 2½ vinning.
Jósef Omarsson (1617) teflir í b-flokki. Hann vann í gær hefur 3½ vinning.
Lokaumferðin fer fram í dag og hófst kl. 7.
230 skákmenn frá 33 löndum tefla í efsta flokki. Þar af eru 6 stórmeistarar.

















