Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2469) og FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2349) eru efstir og jafnir með fullt hús á Skákþingi Kópavogs að loknum fyrsta keppnisdegi.
Í gær voru tefldar þrjár atskákir. Í dag verða tefldar tvær kappskákir sem og einnig á morgun þegar mótinu lýkur.
Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2452) og Ingvar Wu skarphéðinsson (1961) eru í 3.-4. sæti með 2½ vinning. Þeir gerðu jafntefli í innbyrðis skák í gær.
- Auglýsing -















