Vignir Vatnar Stefánsson bætti Norðurlandameistaratitli í bikarasafnið sitt en hann kom í hús í A-flokki með 5,5 vinning af 6 mögulegum, leyfði aðeins jafntefli í fyrstu umferðinni. Alexander Domalchuk-Jonasson átti líka gott mót og endaði í öðru sæti með 5 vinninga, tapaði aðeins gegn Vigni.
A-flokkur (u20)

Skemmst er frá því að segja að okkar menn unnu allar skákir sínar í dag og sönnuðu að þeir voru í sérflokki í elsta flokknum.
Fínn árangur hjá okkar mönnum. Vignir var að taka þátt í síðasta sinn en Alexander á tvær tilraunir eftir til að ná Norðurlandameistaratitli í sitt safn.
B-flokkur (u17)

Benedikt Briem var sá eini sem átti raunhæfa möguleika á Norðurlandameistaratitli eða sæti á palli. Tap í fyrri skák dagsins gerði nánast út um þær vonir, svekkjandi tap hjá okkar manni. Gunnar Erik tapaði einnig fyrir skák sinni gegn Færeyingnum Lujten Apol sem stóð sig vel á þessu móti.
Báðir enduðu þeir á góðum nótum með sigri í lokaumferðinni. Benedikt tefldi nánast módel skák, fórnaði skiptamun og vann með glæsibrag. Fínn endir á annars lélegu móti hjá okkar manni enda er hann mun betri en stigin gefa til kynna og ætlaði sér í hæstu hæðir á þessu móti. Að tapa eða hörfa er ekki í orðaforða Benedikts og hann kemur ákveðinn til leiks í Kragerö eftir tilfinningaríkt mót. Þessi ber að geta að þessi málsgrein var ekki á nokkurn hátt undir áhrifum Benedikts. Benedikt endaði með 3,5 vinning í 4. sæti.
Gunnar Erik tefldi í sjöunda skipti við færeyskan andstæðing sinn í lokaumferðinni. Þeir hafa ALLTAF mæst á þessum mótum og hefur Gunnar Erik ávallt borið sigur úr býtum. Á því varð engin breyting. Gunnar endaði í 7. sæti með 3 vinninga.
C-flokkur (U15)

Báðir strákarnir okkar í C-flokki voru undir pari á þessu móti. 1,5 vinningur kom í hús í dag, Mikael gerði jafntefli í fyrri skák sinni og Matthías vann sína seinni.
Matthías endaði með 3 vinninga í 9. sæti en Mikael 1,5 vinning í 11. sæti. Báðir áttu þeir mikið inni og voru eilítið seinheppnir á þessu móti.
D-flokkur (u13)

Gengið í D-flokknum í dag var upp og niður en 2,5 vinningur af 4 þó í hús.. Jósef vann fyrri skákina og gerði jafntefli í seinni skákinni en Sigurður Páll vann seinni skákina. Í fyrri skákinni tefldi Sigurður vel framan af og allt eins og búist var við en síðan fór kall í hafið. Andstæðingur Sigurðar hefur hið athyglisverða nafn Myagmasuren en það er sama nafn og andstæðingur Bobby Fischer í einni frægustu skák úr afbrigði er kallast King’s Indian Attack.
Sigurður Páll endaði í 9. sæti með 3 vinninga en Jósef í því 10. með 2,5 vinning.
E-flokkur (u11)

Strákarnir í yngsta flokknum enduðu mótið þokkalega og unnu báðir sigra á lokadeginum. Örvar hefði einnig mátt ná sigri í fyrri umferðinni þar sem byrjanaundirbúningur var hnitmiðaður.
Örvar og Birkir enduðu báðir með 3 vinninga. Birkir varð 7. á stigum en Örvar í 8. sæti.
Í heildarkeppninni enduðu Íslendingar í 3. sæti og munaði þar mest um A-flokkinn sem var ansi drjúgur. Of margir voru undir pari í yngri flokkunum þar sem við áttum mikið inni.
Lokakvöldið fór í afslöppun eftir erfitt prógram undanfarna daga. Teknir voru nokkrir Shuffleboard leikir í viðbót og skemmtilegt krakka-kviss leikur.
Mótið 2023 fer fram á Finnlandi og verður erfitt að toppa fínar aðstæður Norðmanna!

















