Margeir að tafli

Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2448) gerði jafntefli í 2. og 3. umferð Graz Open sem fram fóru í gær. Andstæðingar hans voru á stigabilinu 2197-2215. Margeir hefur 2 vinninga. Fjórða umferð fer fram í dag.

171 keppandi frá 29 löndum taka þátt í efstu flokknum. Þar af eru 9 stórmeistarar. Margeir er nr. 11 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -