Vignir að tafli. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Skákhátíðinni í Kragerö var framhaldið í gær með umferðum 7. og 8. umferð. Alls taka 14 Íslendingar þátt í mótinu. Tíu í a-flokki og 4 í b-flokki. Nærri 10% keppendanna eru því slenskir. Lokaumferðin er tefld í dag.

FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2343) og alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2466) eru efstir íslensku keppendanna með 5 vinninga.

Dagur tapaði fyrir indverska stórmeistarann Leon Luke Mendonca (2541) í fyrri skák gærdagsins en gerði jafntefli við norska alþjóðlega meistarann Tor Fredrik Kasssen (2463) í þeirri síðari. Dagur teflir nú við norska alþjóðlega meistarann Frode Elsness (2475) í lokaumferðinni. Geri hann jafntefli nær hann sínum lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli.

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2466) gerði tvö jafntefli í gær við alþjóðlega meistaran. Annars vegar við hinn ísraelska Marsel Efromimski (2456) og hins vegar við bandarísku samfélagsstjörnuna Eric Rosen (2356). Vignir hefur nú gert 5 jafntefli í röð!

Benedikt Briem að tafli í Kragerö. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Stefán Bergsson (2170) er óvænt þriðji í röð Íslendinga með 4½ vinning. Aleksandr, Domalchuk-Jonasson (2336), Benedikt Briem (2096), Stephan Briem (2141) hafa 4 vinninga.

Gauti Páll að tafli í Kragerö: Mynd: Facebook-síða mótsins.

Gauti Páll Jónsson (2047) hefur 3 vinninga. Lenka Ptácníková (2113), Ingvar Wu Skarphéðinsson (1867), Adam Omarsson (1843) hafa 2½ vinning.

Staðan í a-flokki

Alls taka 102 skákmenn þátt í a-flokki.

Iðunn Helgadóttir að tafli í Kragerö. Mynd: Heimasíða mótsins.

Í b-flokki er Iðunn Helgadóttir (1690) efst íslensku keppendanna með 5 vinninga. Jósef Omarsson (1698) hefur 4½ vinning, Unnar Ingvarsson (1717) og Erlingur Jensson (1583) hafa 4 vinninga.

Staðan í b-blokki

Alls taka 64 skákmenn þátt í b-flokki.

Tvær umferðir fara fram í dag og hefjast þær kl. 9 og 14:30.

 

- Auglýsing -