Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.

Vignir Vatnar tapaði fyrir armenska stórmeistaranum Roberti Hovhannisyan (2597) í sjöundu umferð sem fram fór í gær. Vignir hefur 4 vinninga og er 127.-212. sæti.

Áttunda umferð fer fram í dag. Vignir teflir þá við armenska FIDE-meistarann Robert Piliposyan (2314).

Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.

 

- Auglýsing -