Íhugull Vignir Vatnar við taflið á Evrópumótinu í Vrnjacka Banja. — Ljósmynd/Heimasíða EM 2023

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerði jafntefli við búlgarska stórmeistarann Momchil Nikolov (2494) í sjöttu umferð Momchil Nikolov (2494) í gær. Vignir hefur 4½ vinning og er í 2. sæti.

Sjöunda umferð fer fram í dag. Þá teflir Vignir við serbneska stórmeistarann Milos Milosevic (2347)

Alexander Oliver Mai (2141) vann sína aðra skák í röð og hefur 2 vinninga.

Alls taka 48 skákmenn þátt frá 13 löndum. Þar af eru 13 stórmeistarar.  Vignir er nr. 8 í stigaröð keppenda en Alexander er nr. 37.

- Auglýsing -