Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerði jafntefli við serbneska alþjóðlega meistarann Milos Milosevic (2347) í sjöundu umferð Arandjelovac Open í Serbíu í dag. Vignir hefur 5 vinninga og er í 2.-4. sæti.
Alexander Oliver Mai (2141) tapaði og hefur 2 vinninga.
Vignir mætir serbneska stórmeistaranum Miodrag Savic (2430) í áttundu og næstsíðustu umferð sem fram fer á morgun.
Alls taka 48 skákmenn þátt frá 13 löndum. Þar af eru 13 stórmeistarar. Vignir er nr. 8 í stigaröð keppenda en Alexander er nr. 37.
- Auglýsing -