Skákdeild Hauka startar aftur barnastarfi fyrir byrjendur á grunnskólaaldri þriðjudagunn 4. apríl. Kennt verður Apríl/Maí og byrjar svo aftur í haust.
Miðað er við að nemendur kunni mannganginn.
Kenndar verða byrjanir, endatöfl og taktík fyrir byrjendur.
Kennt verður í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum á þriðjudögum á milli kl 17.00-18.30. Kennari er Jóhann Arnar Finnsson.
Skráning og fyrirspurnir fara fram á netfanginu haukarskak@simnet.is (Hægt er að koma með fyrirspurnir en ekki skráningu í síma 821-1963 Auðbergur).
Stúlkur eru sérstaklega hvattar til að mæta.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Skákdeild Hauka
- Auglýsing -