Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.

Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).

————-

Dagur Ragnarsson vann sigur á síðasta þriðjudagsmóti þar sem enn eitt þátttökumetið var slegið. 56 tóku þátt. Sjá úrslit á Chess-Results.

————-

Minnt er á hægt að er að nálgast á Tímaritið Skák á þriðjudagsmótum TR. Nýja tölublaðið hefur heldur betur slegið í gegn seldist betur en heitar lummur á Íslandsmóti skákfélaga síðustu helgi.

Nánar um blaðið. 

- Auglýsing -