Íslensku stúlkurnar á síðasta NM stúlkna. Allar taka þær þátt núna en sjö nýjar bætast við!

NM stúlkna hófst í gær með fyrstu umferð í Helsingborg í Svíþjóð. Sex íslenskar taka þátt.

Úrslit íslensku stúlknanna urðu eftir hinni þekktu bók í gær. Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem sem tefldu við stigalægri andstæðinga unnu en aðrar skákir þar sem teflt var stigahærri keppendur töpuðust.

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 7 og sú síðari hefst kl. 13. Mótinu lýkur svo á morgun með tveimur umferðum

B-flokkur (U17)

Iðunn að tafli í gær. Mynd: Una Strand.

Iðunn Helgadóttir (1622) vann í fyrstu umferð en  Katrín María Jónsdóttir (1091) tapaði.

Mótið á Chess-Results

C-flokkur (U13)

Guðrún Fanney að tafli í gær. Mynd: Kjartan Briem.

Guðrún Fanney Briem (1575) vann í fyrstu umferð en Emilía Embla B Berglindardóttir (1108), Tara Líf Ingadóttir og Sigrún Tara Sigurðardóttir töpuðu.

Mótið á Chess-Results

Allar skákir mótsins eru sýndar beint. Í dag og á morgun verða tefldar tvær umferðir hvorn dag (kl. 7 og 13).

- Auglýsing -