Fimm Íslendingar tefla á alþjóðlegu móti sem nú er í gangi á Helsingjaeyri í Danmörku. Gauti Páll Jónsson (2054) sem teflir í þriðja meistaraflokki hefur farið mjög mikinn og hefur fullt hús að loknum fjórum umferðum. Gauti er góður.
Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson (2364) sem teflir í GM-flokki hefur 2½ vinning að loknum sex umferðum.
Stefán Bergsson (2186) hefur 1½ vinning eftir fjórar umferðir í Meistaraflokki 1. Hefur enn ekki unnið skák. Sama skor hefur Páll Þórsson (1710) í Kronborg-flokki nr. 3. Hann hefur þó unnið skák. Davíð Stefánsson (1671) sem teflir í fjórða Kronborg-flokki hefur 3 vinninga. Vann fyrstu 3 skákirnar.
Í flokki Björns eru tefldar 9 umferðar í 5 dögum en hinir tefla 7 umferðir á 4 dögum. Túrbó-mót. Teflt er í fámennum flokkum og segja má að fyrirkomulagið að því leyti líkist Haustmótinu. Draumamót aðdáenda flokkaskiptingar. Mótinu lýkur á sunnudaginn.
—————
Í dag hefst Þriðja laugardagsmóts í Djenovic í Svartfjallalandi. Meðal keppenda þar er FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson (2218).
Þar tefla 10 kepopendur, allir við alla, ein umferð á dag. Ekkert túrbó-mót. Þorsteinn er nr. 6 í stigaröð keppenda.

















