Stefán Steingrímur Bergsson íbygginn á svip í Portoroz. Mynd: Heimasíða mótsins

Stefán Steingrímur Bergsson (2135) tefldí í dag tvöfalda umferð á Bautzener Türme Open í Þýskalandi. Um er að ræða 9 umferða mót sem keyrt er á 6 dögum með tveimur tveggja umferða dögum. 80 keppendur eru skráðir til leiks. Titilhafar á mótinu eru 13 talsins og Stefán er númer 19 í styrkleikaröð.

Stefán hafði 1 vinning úr fyrstu umferðinni og mætti Þjóðverjanum Richard Glotz (1720) í morgunumferðinni. Þar hafði Stefán sigur en varð að lúta í dúk í seinni skákinni gegn öðrum Þjóðverja Johannes Tschernatsch (2312) sem er FIDE meistari.

Í 4. umferðinni mætir Stefán Irakli Akhvlediani (2390) en hann er einnig FIDE meistari. Morgundagurinn er aftur tvöföld umferð hjá Stefáni.

Chess-Results

Sigurður Ingason að tafli Mynd: Skák.is/Gerd Densing.

Sigurður Ingason situr einnig að tafli í Búdapest á hinusögufræga First Saturday móti. Sigurður teflir í Round-Robin flokki þar sem tefld er tvöföld umferð. Sigurður er stigalægstur í flokknum og teflir um 250 stig upp fyrir sig í hverri skák. Fyrstu þrjár umferðirnr voru góðar þar sem Sing fékk 50%

Í 4. umferðinni lá Sigurður gegn alþjóðlega meistaranum Sandor Farago (2121). Þeir eru kannski orðnir stigalágir þessir ungversku alþjóðlegu meistarar sem tefla og tefla á þessum First Saturday mótum en það vantar ekki keppnisreynsluna!

Skákir Sigurðar úr fyrstu þremur umferðunum.

Í 5. umferðinni mætir Sigurður alþjóðlega meistaranum Dr. Evarth Khan sem þó er aðeins með 2008 elóstig en eins og Farago hefur gríðarlega reynslu. Fjölmargir íslenskir skákmenn hafa mætt þessum mönnum í gegnum tíðina.

Chess-Results

- Auglýsing -