Stóra sagan í 32 manna úrslitum á Heimsbikarmótinu í Baku var klárlega tap Magnus Carlsen gegn Þjóðverjanum unga Vincent Keymer. Wesley So varð einnig að lúta í dúk í sinni skák og þeir þurfa báðir „eftirspurnarsigur“ á morgun. 16 manna úrslit kvennamegin hófust einnig í dag og var rólegra á þeim vígstöðvum.

Förum yfir viðureigninar

Vincent Keymer (2690) – Magnus Carlsen (2835)

Saga dagsins klárlega tap Magnus Carlsen gegn þýska ungstirninu Vincent Keymer. Magnus hafði svart og hafði örugglega fína stöðu eftir byrjunina.

Keymer náði skemmtilegri taktík í miðtaflinu með 26.Rxd5! Carlsen hefur þó líklega séð það því þó það sé besti leikurinn verða einfaldlega uppskipti á liði. 26…Rxd5 27.Dxc4 Hxa3.

Staðan var áfram í jafnvægi þar til Magnus lék af sér. Magnus hafði 50 mínútur gegn 6 mínútum Keymer og e.t.v. var hann að tefla aðeins of mikið upp á tímann hér.

36…Rc7? reyndist slakur þar sem svartur lendir í vandræðum með b7 peðið eftir 37.Rd6. Carlsen hefur líklegast misst af einhverju hér. T.d. 37…Re6 38.Hf5 eitthvað slíkt.

Þjóðverjinn fékk mjög vænlegt og þægilegt endatafl peði yfir og í raun ekkert sem Magnus gat gert eftir þennan afleik.

Hikaru Nakamura (2787) – Pragganandhaa (2690)

Gott jafntefli hjá Pragga hér með svörtu gegn Nakamura. Pragga hafði klárlega betra tafl í miðtaflinu með meira rými og góða riddara. Naka er einn besti varnarskákmaður heims og háði að komast í endatafl þar sem hann hafði líklega aðeisn betri sénsa en aldrei nóg til að ógna Indverjanum unga.

Wesley So (2769) – Alexei Sarana (2685) 

Wesley virðist ekki vera í sínu besta formi og hefur verið að ströggla í mörgum viðureignum. Það má með sanni segja að hann sé að ströggla hér líka, nú þarf hann eftirspurnarsigur með svörtu mönnunum. Sarana kláraði So ansi skemmtilega með flottum leikjum í lokin.

Peter Svidler(2688)  – Nijat Abasov (2632)

Abasov tefldi lengsta einvígið í síðustu umferð og venjulega hefði Svidler mögulega getað nýtt sér það en Azerinn hefur væntanlega notað frídaginn vel í gær. Svidler fékk betra tafl en Azerinn hafði orku í að verjast og náði í gott jafntefli.

Ray Robson (2689) – Fabiano Caruana (2782)

Það er yfirleitt best að þvælast ekkert of djúpt í teórium gegn Fabiano Caruana.  Fabi virtst vel undirbúinn fyrir Catalan byrjun Bandaríkjamannsins Robson og var aldrei í vandræðum. Jafntefli rökrétt úrslit og Fabi fær „frítt spil“ með hvítu á morgun.

Salem A R Saleh (2661) – Daniele Vocaturo (2609)

Skildu jafnir í fyrri skákinni.

Radoslaw Wojtaszek (2676) – Leinier Dominguez (2739)

Endaði í jafntefli, líklega auðveldasta spá umferðarinnar. Tveir gríðarlega traustir skákmenn.

Jan-Krzysztof Duda (2732) – Parham Magsoodloo (2719)

Öruggt jafntefli í Spánverjanum hjá Írananum Parham gegn ríkjandi meistara. Gæti orðið spennandi einvígi.

Wang Hao (2709) – Rasmus Svane (2625)

Jafntefli þar sem Wang Hao þurfti að beita bellibrögðum í endataflinu til að halda fengnum hlut.

Ian Nepomniachtchi (2779) – Nihal Sarin (2688)

Nihal náði að halda með svörtu og virtist nokkuð sáttur með jafnteflið.

Javokhir Sindarov (2639) – Arjun Erigaisi (2710)

Jafntefli hjá þessum ungu og skemmtilegu skákmönnum.

Nils Grandelius(2684) – Jaime Santos Latasa (2656).

Það er óhætt að segja að það séu margir sem fylgist vel með og haldi með frænda okkar Nils Grandelius. Grandelius er núverandi Reykjavíkurskákmótsmeistari og teflt á fjölda Reykjavíkurskákmóta og tefldi um árabil í deildakeppninni.

Segja má að „Nilli“ hafi leitað í smiðju Ulf Andersson, slíkur var svíðuingurinn. Svíinn fór í endtafl með jafnt á liði en mislitum biskupum. Spánverjinn hafði ýmsa veikleika en það virtist auðvelt að valda þá. Grandelius fór í mikið svæðanudd og kitlaði veikleikana í réttri röð, rangri röð og einhverri röð þar til varnir svarts einfaldlega héldu ekki lengu. Grandelius komst tveimur peðum yfir og sigldi þessu heim.

Vasyl Ivanchuk (2667) –  Vahap Sanal (2591)

Jafntefli í mjög tíðindalítilli skák. Vahap Sanal heldur áfram að koma á óvart.

Gukesh (2744) – Andrey Esipenko (2683)

Skildu jafnir, verður líklegast hörkueinvígi.

Vidit Santosh Gujrahti (2723) – Etienne Bacrot (2662)

Sóknarskák dagsins hjá Indverjanum knáa. Hann valdi sjaldgæfan Rcb5 leik í byrjuninni og fórnaði svo tveimur peðum, á e5 og f6 og lét þann franska líta illa út í dag!

Ferenc Berkes (2615) – Ruslan Ponomariov (2664)

Berkes heldur áfram að koma á óvart og lagði Ponomariov að velli í fyrri skákinni. Einn af flottari skákum umferðarinnar. Berkes kom með „modern“ hugmynd í byrjuninni með h4 leik í þekktu afbrigði. Hann yfirspilaði Ruslan svo algjörlega og fórnaði skiptamun á einum stað og vélaði svo tvo menn fyrir hrók eftir að hafa unnið skiptamuninn strax til baka. Ruslan ruslað upp!

Kvennaflokkur

Alllar skákirnar í kvennaflokki enduðu með jafntefli nema ein. Stórmeistarinn Bella Khotenashvili (2475) frá Georgíu náði sannfærandi sigri með svörtu gegn Koneru Humpy (2553) sem er klárlega ein af þeim sigurstranglegri…eða var það allavega fyrir þetta tap!

Muzychuk systurnar skildu jafnar og þarf það ekki að koma á óvart. Ritstjórn spáir því að þær sláist í hraðari skákunum.

Á morgun halda 32 manna úrslitin í opnum flokki og 16 manna úrslitum í kvennaflokki áfram. Ansi margir sem þurfa „eftirspurnarsigur“ og spurning hvað Magnus og Wesley gera á morgun!

Upptaka af beinni útsendingu dagsins:

- Auglýsing -