Stefán Steingrímur Bergsson (2135) hóf í dag leik á Bautzener Türme Open í Þýskalandi. Um er að ræða 9 umferða mót sem keyrt er á 6 dögum með tveimur tveggja umferða dögum. 80 keppendur eru skráðir til leiks. Titilhafar á mótinu eru 13 talsins og Stefán er númer 19 í styrkleikaröð.

Í fyrstu umferð mætti Stefán Þjóðverjanum Frank-Peter Rößler (1850) og hafði Stefán hvítt og vann skákina.

Á morgun er tvöfaldur dagur og mætir Stefán Þjóðverjanum Richard Glotz (1720) í morgunumferðinni.

Chess-Results

- Auglýsing -