Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mættu Gauti Páll og Björn Ívar, í settið í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir:
Gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni í þættinum Við skákborðið voru þeir Gauti Páll Jónsson og Björn Ívar Karlsson. Gauti Páll er ritstjóri tímaritsins Skákar og varaformaður Taflfélags Reykjavíkur. Björn Ívar er skákkennari, fyrrum landsliðsþjálfari kvenna og með þjálfaragráðu frá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Einnig situr Björn í ritnefnd tímaritsins Skákar.
Aðalumræðuefni þáttarins var nýútkomið tölublað tímaritsins Skákar en um er að ræða þriðja blaðið í þeirri útgáfu sem hóf göngu sína árið 2022. Einnig var rætt um Íslandsmót skákfélaga sem hefst á morgun í Rimaskóla en keppt er í fimm deildum og eru keppendur á öllum aldri og allt frá byrjendum til stórmeistara. Í þættinum var víðar skotið niður fæti enda hefur margt verið í gangi hjá íslenskum skákmönnum að undanförnu, bæði hér heima og á erlendri grundu.
Hvernig nálgast maður eintak af Skák?
Jafnframt er hægt að skrá sig beint fyrir blöðunum hér að ofan með því að velja viðkomandi greiðslutengil. Blaðið verður sent í pósti.
Sölustaðir:
- Í Rimaskóla á Íslandsmóti skákfélaga helgina 12.-15. október.
- Í félagsheimili TR, Faxafeni 12, á þriðjudags og fimmtudagskvöldum frá klukkan 19:30, samhliða vikumótum TR.
Þáttinn má nálgast á Spotify.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
















