Fyrsta mótið í Bikarsyrpuröð Taflfélags Reykjavíkur fór fram um helgina í Faxafeninu. Skemmtileg barátta varð um efstu sætin en eftir úrslitaskák í lokaumferðinni milli Theodórs Eiríkssonar og Einars Helga Dórusonar var það Theodór sem hafði sigur úr býtum að þessu sinni.
Alls hófu 31 leik á mótinu og teflt var föstudag, laugardag og sunnudag alls 7 umferðir. Tímamörkin voru 30+30 sem eru lágmarkstímamörk til að skákir séu reiknaðar til kappskákstiga.
Theodór hlaut 6 vinninga, tapaði aðeins einni skák gegn Engilbert Viðari Eyþórssyni og hækkar um heil 62 elóstig fyrir árangurinn! Engilbert lenti í öðru sæti, hann varð að taka hálfs-vinnings hjá setu í einni umferðinni og tapaði svo einni skák, gegn Einari Helga sem hafnaði svo í þriðja sæti á stigum.

Stúlknaverðlaun skiptust þannig að Emilía Embla B. Berglindardóttir varð hlutskörpust en á eftir henni komu Emilía Sigurðardóttir og Margrét Einarsdóttir.

Lokastaða efstu krakka varð eftirfarandi:

Nánari úrslit er hægt að nálgast á Chess-Results















